Möðrurót ~ tvílit
2 500 ISK
Rubia tinctorum Litað með möðrurót. Möðrurót er frænka íslensku gulmöðrunnar. Ef nota ætti gulmöðrurætur til að lita rautt, þá þyrfti að grafa upp heilu og hálfu móana! Því er frænkan flutt inn til að hlífa íslenskri náttúru. Tveggja þátta ullarband af kindunum í Lóni, unnið hjá smáspunaverksmiðjunni Uppspuna. Lengdin getur verið aðeins mismunandi eftir reifum; 95-105 m í 50 g. 50 g hespa Prjónar 3,5-4