Drengurinn sem dó úr leiðindum
4 900 ISK
Er í alvörunni hægt að deyja úr leiðindum? Drengurinn sem dó úr leiðindum er saga um nútíma krakka. Bestu símarnir, skemmtilegustu tölvuleikirnir og hangs á netinu er það sem skiptir mestu máli í lífinu. Heimur Kára Hrafns, venjulegasta tólf ára stráks í heimi, hrynur þegar foreldrar hans taka frá honum öll snjalltæki og í staðinn fær hann skærgulan farsíma sem hentar bara risaeðlum. Hvað annað getur gerst en að Kári Hrafn hreinlega deyr úr leiðindum! En hvað tekur þá við? Sagan fjallar um vináttu, fjölskyldu og allt annað milli himins og jarðar sem skiptir máli. 171 bls. Bókaútgáfan Sæmundur 2021